já engin hreyfing hér á bæ eða, eru kannski allir voða uppteknir
í lífinu og nenna ekkert að eyða tíma á netinu?
ég nenni því alla veganna, það er smá fréttir af mér og mínum,
Unnur farin að labba dáldið núna, og standa upp á miðju gólfinu,
voða dugleg, axel orðin mjög flinkur að teikna allskonar fígúrur,
það er bara gaman að sitja með honum og teikna hann hefur svo
frjótt ímyndunuarafl að hálfa væri nóg, þau eru yndisleg börnin
mín.
kallinn er að gera góða hluti, á valentínusardaginn lét hann
renna í baðið, dreyfði 12 kertum um allt baðherbergið, setti bombu
í baðið og stráði rósablöðum um allt, og keypti hjartalaga sápu í
þokkabót, þetta var geðveikt hjá honum, ég vissi ekki að hann hefði
þetta í sér, bræddi mig alveg, plús það þá fékk ég frí, hann setti
dúllurnar upp í rúmm, ég lá bara í baðinu eins og skata að lesa,
NICE!!!!
já mútta og pabbi eru flutt til Hveragerðis, í gamla húsið
þeirra ömmu og afa, þeim líður bara vel þarna helda ég, er voða
gott að búa þar, svo rólegt, ég fór seinustu helgi til þeirra með
krakkanna og gisti, það var kosý, hjálpa þeim líka að ganga frá
dótinu á sinn stað og eyða smá tíma með henni, er orðin algjör
mömmustelpa
svo er maður alltaf í Al-anon samtökunum, þau eru alveg að gera
sitt, þakklát fyrir samtökin, tala ekkert meir um það,,,,
það er ekkert meira að frétta, er enn heima að hugsa um
dúllurnar, teikna og njóta þess að þurfa ekki að vinna.
SESSA VIÐ ÞURFUM SVO FLJÓTLEGA AÐ HITTAST OG FARA YFIR
REUNION PLANIÐ? call me??